Akureyringar ánægðir með nýtt fyrirkomulag í bæjarstjórn
Samkvæmt nýrri könnun Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) er meirihluti Akureyringa ánægður með þá ákvörðun bæjaryfirvalda að fella niður minni og meirihlutann líkt og gert var í haust. Spurt var: Nýverið var kynnt nýtt fyrirkomulag í bæjarstjórn Akureyrar. Eftir breytinguna er enginn meiri- og minnihluti til staðar. Hvernig hugnast þér þessi breyting?
Alls svöruðu 534 spurningunni og af þeim höfðu 13% ekki myndað sér skoðun. Af þeim sem höfðu myndað sér skoðun leist 30% mjög vel á breytinguna, 28% frekar vel og 27% hvorki vel né illa. 16% aðspurðra leist frekar eða mjög illa á.
Þegar niðurstöðurnar voru greindar eftir því hvað fólk kaus í síðustu bæjarstjórnarkosningum má sjá að kjósendum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hugnast þessi breyting best en 65% kjósenda Samfylkingarinnar og 64% kjósenda Vinstri grænna voru jákvæðir gagnvart breytingunni. Kjósendur Framsóknarflokks komu þar skammt á eftir en 61% þeirra leist mjög eða frekar vel á breytinguna.
Af þeim sem kusu Miðflokkinn síðast hugnaðist 57% breytingin vel, 50% kjósenda L-listans og 49% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Breytingin nýtur minnst stuðnings meðal þeirra sem kusu Pírata síðast (38%) en þó eru samt fleiri sem hugnast breytingin vel en illa.
Könnunin var send á 933 bæjarbúa og fór fram dagana 20. október til 9. nóvember.