Akureyrarbær Ræstingarfólk njóti samningsbundinna réttinda

Bæjarráð Akureyrar tekur alvarlega þá umfjöllun sem fram hefur komið um aðstæður og kjör starfsfólks tiltekinna ræstingarfyrirtækja Mynd Vbl.
Bæjarráð Akureyrar tekur alvarlega þá umfjöllun sem fram hefur komið um aðstæður og kjör starfsfólks tiltekinna ræstingarfyrirtækja, en rætt var um stöðu ræstingarfólks á fundi ráðsins nýverið í kjölfar umræðu um aðstæður þess og kjör.
Akureyrarbær hefur óskað eftir og fengið upplýsingar frá þeim fyrirtækjum sem sveitarfélagið er í viðskiptum við, auk þess sem fundað hefur verið með stéttarfélagi vegna málsins.
Bæjarráð leggur áherslu á þá sjálfsögðu kröfu að umrætt starfsfólk njóti allra kjarasamningsbundinna réttinda sem og að starfsaðstæður séu eins og best verður á kosið.