Akureyrarbær fellur frá gjaldskrárhækkunum

Frá Akureyri/mynd Ragnar Hólm
Frá Akureyri/mynd Ragnar Hólm

Fjallað var um gjaldskrár Akureyrarkaupstaðar á fundi bæjarráðs í morgun og samþykkt að falla frá fyrirhugaðri hækkun á vistunargjöldum í leikskólum og gjöldum vegna félagsþjónustu sem koma áttu til framkvæmda um áramót. Með þessu vill bæjarráð leggja lóð sitt á vogarskálarnar til að stemma stigu við verðbólgu og vinna að stöðugleika. Til að ná sömu markmiðum var á stjórnarfundi Norðurorku í lok nóvember samþykkt að hækka ekki gjaldskrár fyrir hitaveitu og rafveitu á þjónustusvæði fyrirtækisins.

 

Bæjarráð vekur athygli á því að hér eftir sem hingað til verða ekki  innheimt gjöld fyrir strætisvagnaferðir, bókasafnsskírteini og bifreiðastæði í miðbænum, segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ

 

Nýjast