13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
„Áfram verðum við í einhverju mildasta veðrinu hérna á Dallas“
Veðurklúbburinn í Dalbæ á Dalvík hefur fundað og gefið út veðurspá fyrir marsmánuð. Þar kemur fram að áfram verði mildasta veður landsins Dalvík og að klúbburinn sé farinn að kenna í brjóst um aðra landshluta.
„Við gætum nánast afritað hingað síðustu fundargerð því veðurspá marsmánaðar hljómar mjög svipað og sú síðasta þó úrkoma hérna á Dalvík í mars verði ekki eingöngu í föstu formi heldur aðeins blautari en hún var í febrúar. En áfram verðum við í einhverju mildasta veðrinu hérna á Dallas á meðan við erum farin að vorkenna suður, austur og vesturhlutum landsins fyrir þá veðráttu sem yfir þá gengur,“ segir í fundargerð veðurklúbbsins.
Þá er greint frá því að sauðfé sem hafist hefur við í Eldborgarhrauni í vetur hafi skilað sér heim í hús. „Við fréttum þó af kindum sem höfðu náð að fela sig í Eldborgarhrauni í Kolbeinsstaðahreppi í mest allan vetur sem voru búnar að fá nóg af þessum veðráttum sem á þeim slóðum og drifu sig bara heim að Ystu Görðum til Andrésar og Þóru um miðjan febrúar til að komast í almennilegt skjól. Og mátti Andrés bóndi víst hafa sig allan við að ná að fylgja þeim eftir heim að húsum síðasta spölinn. Enda skalla á eitthvað það leiðinlegasta veður á þeim slóðum í vetur þá um nóttina. Þarna minntu þessar snjöllu skepnur okkur á að þær vita á sig veðrið oft mun betur en við mannfólkið og ættum við því að vera mun duglegri við að læra af þeim,“ rita fundarmenn klúbbsins.
Eftirfarandi vísur og skýringar um mars og Góu fylgdu með í fundargerð veðurklúbbsins.
Ef hún Góa öll er góð,
öldin má það muna,
þá mun Harpa hennar jóð
herða veðráttuna.
Sighvatur Árnason fyrrverandi alþingismaður, gerði athuganir á því hvernig ýmsir veðráttuspádómar hefðu reynst á árunum 1840-1900 og skrifaði um það í Skírni 1907. Þar segir hann um þennan veðráttuspádóm:
Þau árin, 6 að tölu, á þessu árabili, sem Góan var einmuna góð, stundum greri jörð, þá rættist þetta þannig, að tíðarfarið breyttist alltaf til hins verra á næstu mánuðum (Einmánuði og Hörpu) en þó einkum 3 árin í alvarleg harðindi.
Góa á til grimmd og blíðu,
gengur í éljapilsi síðu.
Einmánuður andar nepju,
öslar snjó og veður krepju.
Höfundur:Hallgrímur Jónsson barnakennari í Reykjavík
Mars hefur hingað til verið
Mildur hér norðan á skerið
Með minnkandi snjóu
Og magurri Góu
Við njótum hans næsta misserið.
Höf. BJÓR.