Aðeins 25 prósent Akureyringa ánægðir með skipulagsmál

Gallup kannar árlega viðhorf íbúa gagnvart þjónustu sveitarfélaga og nú liggja fyrir niðurstöður ársins 2021. 20 stærstu sveitarfélögin voru mæld, Akureyrarbær þar á meðal, og er spurt um 12 mismunandi málaflokka.

Greint er frá því á vef Akureyrarbæjar að sem fyrr komi umhverfismál einna best út hjá Akureyrarbæ sem endurspeglar áherslu sveitarfélagsins á að vera í fararbroddi á því sviði. Að þessu sinni var spurt sérstaklega um ýmsa þætti umhverfismála, svo sem sorphirðu, loftmengun og umhverfisvænar samgöngur, og eru íbúar yfir meðaltali ánægðir með þessa málaflokka.

Mikill meirihluti íbúa Akureyrarbæjar er samkvæmt könnuninni frekar eða mjög ánægður með sveitarfélagið sem stað til að búa á.
Niðurstöður varpa hins vegar ljósi á tækifæri til úrbóta á ýmsum sviðum. Þar má nefna að 45% íbúa eru frekar eða mjög óánægðir með skipulagsmál á Akureyri. Aðeins 25% eru frekar eða mjög ánægð en 30% svöruðu hvorki né. Á heildina litið stendur ánægja með þjónustu sveitarfélagsins í stað eða minnkar lítillega milli ára.

Nýjast