Að lágmarki um 28 íbúðir á svæðinu
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt að vísa skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir nýtt íbúðarhverfi sunnan Grenivíkurvegar í kynningarferli. Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja íbúðalóðir á svæðinu sem er í brekku sunnan þjóðvegar beint suður af Gamla skóla. Svæðið er um 3,6 ha að stærð. Miðað er við að þar verði að lágmarki um 28 íbúðir og er markmið að auka fjölbreytni í lóðaframboði á Grenivík.
Fram kemur í skýrslu um nýja íbúðasvæðið að fjöldi lóða á þessu nýja svæði sé í heild nokkuð umfram það sem líklegt er að þörf verði fyrir á næstu árum. Byggingarsvæðið muni væntanlega byggjast upp hægt og rólega þannig að lóðir verða gerðar byggingarhæfar eftir þörfum á löngum tíma. Miðað er við að íbúðir verði fyrst og fremst í sérbýlishúsum, raðhúsum og parhúsum.
Allt að 420 íbúar eftir áratug
Í upphafi þessa árs voru 371 íbúi í Grýtubakkahreppi og af þeim bjuggu 291 á Grenivík, en frá árinu 2010 hefur íbúum á Grenivík fjölgað um 42. Gróflega er áætlað að íbúafjöldi í sveitarfélaginu verði á bilinu 365 til 420 árið 2031. Ef miðað er við efri mörk verður þörf fyrir um 20 nýjar íbúðir fram að þeim tíma. Flestar þeirra verða væntanlega á Grenivík.
Auk þessa nýja íbúðahverfis sem nú er í kynningarferli er gert ráð fyrir 23 nýjum íbúðalóðum við Lækjarvelli og þéttingu byggðar við Ægissíðu, þar sem komast fyrir þrjár nýjar íbúðir. Við Höfðagötu syðst í byggðinni er rými fyrir um 10 íbúðir, þar af eru 6 á óbyggðum einbýlishúsalóðum. Á miðsvæði sunnan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir stækkun Grenilundar og þar má einnig gera ráð fyrir litlum fjölbýlishúsum.
/MÞÞ