116 í einangrun á Norðurlandi eystra og sex inniliggjandi á SAk

Sex eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19.
Sex eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19.

116 eru nú í einangrun á Norðurlandi eystra og 146 í sóttkví. Fimm smit greindust um helgina, fjögur á Akureyri, eitt á Dalvík. Af þeim var eitt smit utan sóttkvíar, það var barn á leikskólanum Pálmholti og er uppruni smitsins óljós. Nú er rúm vika síðan það greindist smit utan sóttkvíar á Dalvík. Þetta kjemur fram í frétt Rúv.

Sex liggja inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri en enginn á gjörgæslu. Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu segir í samtali við Rúv einstaklingana á breiðum aldri en flesta aldraða. 

Nýjast