1000 vörubílahlössum af snjó mokað af knattspynuvellinum á Dalvík
Veturinn í vetur hefur verið sá snjóþyngsti í Dalvíkurbyggð um árabil. Það byrjaði að snjóa af alvöru í lok október á síðasta ári og síðan hefur snjórinn hlaðist jafnt og þétt upp í myndarlegar snjóstæður, sums staðar margra metra djúpar.
Með vorið á næstu grösum þarf að huga að ýmsum vertíðum sumarsins. Fótboltaáhugamenn hafa þó hugsað með hryllingi til komandi sumars því yfir íþróttasvæðinu á Dalvík hefur legið hátt í tveggja metra þykkt snjóteppi. Fyrsti heimaleikur meistaraflokks Dalvíkur/Reynis er 4. maí næstkomandi en þá er bikarleikur gegn Hömrunum. Þann 25. maí er síðan fyrsti heimaleikur í deildinni. Til þess að bregðast við þessu ástandi og hjálpa svæðinu að losa sig við snjóinn var bruðið á það ráð að moka og blása burtu hluta af snjónum. Síðustu daga hafa því snjótroðari skíðafélagsins og tvær vinnuvélar hamast við að moka burtu snjó en mönnum reiknast til að samtals sé búið að moka og blása burtu af vellinum um 12.000 rúmmetrum af snjó. Það eru um það bil 1000 vörubílar.