Veðrið kallar fram margvísleg viðbrögð

Mynd Fbsíða Slippsins
Mynd Fbsíða Slippsins

Fátt hefur meiri áhrif á skapgerð okkar en.... við segjum þegar það á við ,,blessað veðrið“ og þá blíðlega.  Tónninn  er svo allur annar þegar veður er með þeim hætti sem verið hefur s.l daga og þá segjum við með þunga ,, helv. skítaveður er þetta“

En einn leiðin til að tjá sig um veður er svo að gera eins og Garðar Jóhannesson þúsundþjalasmiður og hagyrðingur sem starfar hjá Slippnum gerir og  sagt er frá á Fbsíðu fyrirtækisins  og hér má sjá að neðan: 

,,Garðar okkar Jóhannesson, þúsundþjalasmiður og hagyrðingur, rammaði inn aðstæðurnar sem veðurguðirnir bjóða upp á þessa dagana

Það vetraði snemma um vor

Vosbúð og ömurleiki

Hósti og fullt af hor

Hraglandi hér á reiki"


Athugasemdir

Nýjast