Nýr verkefnastjóri rekstrarsviðs MAk

Jóhann Gunnar Kristjánsson. Mynd/MAk.is
Jóhann Gunnar Kristjánsson. Mynd/MAk.is

Menningarfélag Akureyrar hefur fengið Jóhann Gunnar Kristjánsson til liðs við sig í starf verkefnastjóra rekstrarsviðs. Hann hefur mikla þekkingu á rekstri og stjórnun og hefur áður bæði starfað hjá Leikfélagi Akureyrar og MAk.

Jóhann hefur lagt stund á nám við Viðskiptafræði í Háskólanum á Akureyri . Hann var áður rekstrarstjóri hjá Norrænu (Smyrilline). Árið 2010-2015 vann hann hjá Leikfélagi Akureyrar í miðasölu.

Nýjast