20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
MAk ræður verkefnastjóra kynningarmála
Silja Dögg Baldursdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri kynningarmála hjá Menningarfélagi Akureyrar.
Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Silju Dögg Baldursdóttur til starfa sem verkefnastjóra kynningarmála.
Silja Dögg er með BA gráðu í fjölmiðlafræði og diplómu í verkefnastjórnun Hún starfaði áður hjá Leikfélagi Akureyrar sem miðasölu- og markaðsfulltrúi. Hún hefur auk þess undanfarin ár sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir Akureyrarbæ.
Nýjast
-
Ferðafrelsið er dýrmætt
- 26.11
Ferðafrelsi er kannski ekki eitthvað sem menn alla jafna velta mikið fyrir sér frá degi til dags. Kannski vegna þess að okkur finnst það svo sjálfsagður hlutur. Að mega ferðast frjálsir um vegi og slóða um fjöll og fyrnindi umvafin náttúrunni við hvert fótmál. Þessir slóðar og fjallvegir urðu ekki til af sjálfu sér heldur mótuðust af höndum og hug þeirra frumkvöðla sem fyrstir fóru af stað á vanbúnum, óbreyttum bifreiðum þess tíma, þekktu á og kunnu að lesa í ár, vötn og land og öfluðu sér dýrmætrar þekkingar sem skilaðist áfram til næstu kynslóða. -
Listasafnið á Akureyri: Opnun, fimmtudagskvöldið 28. nóvember
- 25.11
Fimmtudagskvöldið 28. nóvember kl. 20-22 verða opnaðar tvær sýningar í Listasafninu á Akureyri: Sólveig Baldursdóttir – Augnablik-til baka og Átthagamálverkið: Á ferð um Norðausturland liðinnar aldar. Boðið verður upp á sýningarstjóraspjall með Markúsi Þór Andréssyni, sýningarstjóra Átthagamálverksins, kl. 20.40 og listamannaspjall með Sólveigu kl. 21. -
Íslandsþari með ný áform um þaravinnslu á Húsavík
- 25.11
Íslandsþari óskar eftir að fá úthlutað lóðinni að Búðarfjöru 1 á Húsavík til uppbyggingar húsnæðis til úrvinnslu stórþara. -
Betra veður fyrir íþróttakrakkana okkar!
- 25.11
Á ferð minni um okkar víðfema og fallega kjördæmi hef ég lent í allskyns vandræðum í öllum veðrum nú í nóvember. Ég er sannarlega ekki einn um það enda vegir landsins uppfullir af spennandi frambjóðendum í leit að sem flestum samtölum við fólkið í landinu. Frambjóðendur keppast nú við að birta myndir og myndbönd af skafrenningi, snjókomu, blindbyljum og fleira til. Allt til þess gert að sýna fólki hversu vandasamt það getur verið að ferðast um landið í nóvember. Sem betur fer er bara kosið á fjögurra ára fresti og oftast á vorin. Þess vegna er þetta nú frekar undantekning en hitt að frambjóðendur þurfi að vaða út í þetta veður og þessa færð í atkvæðaleit. -
Nærsamfélagið tekur höndum saman
- 24.11
Jólatónleikar til styrktar Sigrúnu Björgu Aðalgeirsdóttur og fjölskyldu -
Jólamatur fátæka mannsins
- 24.11
Einn af mínum allra uppáhalds fuglum er rjúpan. Rjúpan nam hér land við lok ísaldar fyrir um 10.000 árum og kom upprunalega frá Grænlandi. Hún á sér lengri forsögu hér en við. Mér finnst hún ekki bara falleg, hún er brögðótt, á 3 alklæðnaði og þegar hún ver unga sína, þá sýnir hún vanmetna vitsmuni. -
Hver grípur þig?
- 24.11
„Við vildum að fólk gerði sér grein fyrir hvaða þjónusta er í boði og hvert er hægt að sækja hana þegar aðstoðar er þörf, fólki að kostnaðarlausu. Einnig langar okkur með málþinginu að styrkja samstarfið á milli félaganna, að fulltrúar þeirra séu upplýst um aðra kosti sem eru í boði fyrir fólk og geti bent málum í réttan farveg eða til viðeigandi félagasamtaka,“ segir Erla Lind Friðriksdóttir um málþing sem hún stendur fyrir ásamt frænku sinni Birnu Guðrúnu Árnadóttur. -
Sérútbúinn lögreglubíll til landamæraeftirlits
- 24.11
Embætti Lögreglunnar á Norðurlandi eystra hefur fengið til eignar sérútbúinn lögreglubíl til afnota við landamæraeftirlit. Segja má að þar sé á ferðinni fullbúin landamærastöð á hjólum. Landamæra- og áritunarsjóður Evrópusambandsins greiddi 75% kostnaðar og Dómsmálaráðuneytið 25% og skiptu einnig með sér kostnaði við einn starfsmann í þrjá mánuði síðastliðið sumar. -
Klúbbar styrkja Frú Ragnheiði
- 23.11
Klúbbarnir Ladies Circle 7 og Round Table 15 afhentu Frú Ragnheiði rausnarlegar styrk í vikunni, ómetnalegur styrkur . „Við erum svo innilega þakklát og mun þetta nýtast skjólstæðingum okkar vel segir í tilkynningu, en styrkurinn er að upphæð um 630 þúsund krónur.