Fimm hæða byggingar með bílageymslu á svæðinu milli Naustahverfis og Hagahverfis

Heimilt verður að byggja fimm hæðir og bílgeymslu þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri verslunar- …
Heimilt verður að byggja fimm hæðir og bílgeymslu þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðum en búseta er fyrirhuguð á efri hæðum.

Akureyrarbær hefur hafið vinnu við breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Breytingin nær til reitsins VÞ13, sem liggur á svæðinu milli Naustahverfis og Hagahverfis, og felur í sér að svæðið verði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði með heimild fyrir íbúðum á hluta svæðisins. Heimilt verður að byggja fimm hæðir og bílgeymslu þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðum en búseta er heimil á efri hæðum.

Deiliskipulagstillagan nær til lóðarinnar Naustagötu 13 sem afmarkast af Davíðshaga í suðri, Kjarnagötu í vestri, Naustagötu í norðri og af göngustíg milli Haga- og Naustahverfis í austri. Lóðin er 4.568 m². Byggingarreitur lóðarinnar er tvískiptur og má bygging á vesturhluta lóðarinnar vera 5 hæðirauk kjallara en bygging á austurhlið 2 hæðir og kjallari.

Markmið deiliskipulagsins er að auka nýtingarhlutfall lóðarinnar sem er vel staðsett milli Haga- og Naustahverfis og ber aukið byggingarmagn vel. Önnur markmið deiliskipulagsins eru að leyfa byggingu íbúða á efri hæðum hússins, gera fólki í nærumhverfi kleift að sækja sér verslun og þjónustu gangandi og minnka vægi bílsins sem og að styrkja rekstrargrundvöll verslunar og þjónustu á lóðinni.

Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar.

 

 

Nýjast