Stendur á tímamótum
"Mér fannst mjög erfitt að hætta að vinna því ég hafði alltaf svo gaman af þessu starfi. Ég hætti líka svolítið bratt og konan mín sagði að ég hefði verið hundleiðinlegur í tvo mánuði,“ segir Magnús. Mynd/Þröstur Ernir.
Magnús Stefánsson barnalæknir á Akureyri er mörgum bæjarbúum kunnur eftir áratugi í starfi. Hann stendur senn á tímamótum en Magnús fagnar 80 ára afmæli sínu í byrjun næsta mánaðar. Í tilefni þess sendir hann frá sér bók á næstu dögum sem hann hefur verið með í undirbúningi í mörg ár og fjallar um sögu sjúkrahúss á Akureyri. Magnús hætti læknastörfum fyrir átta árum og segir heilsunni hafa hrakað í kjölfarið. Hann er þó hvergi banginn, er bjartsýnn á framtíðina og finnur sér alltaf að eitthvað að gera.
Vikudagur kíkti í heimsókn til Magnúsar og spjallaði við hann um tímamótin, bókina, læknastörfin og lífið. Viðtalið má nálgast í prentúgáfu blaðsins.