Úrslit ráðast á Kjarnafæðismótinu i fótbolta, allur aðgangseyrir rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar
KA og Þór mætast í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins í Boganum kl. 20:00 í kvöld. Aðgangseyrir er aðeins 500 kr. og rennur hann óskiptur til Krabbameinsfélags Akureyrar.
Það er alltaf líf og fjör á vellinum þegar þessi félög mætast og því má búast við góðri skemmtun fyrir lítið fé og ekki er verra að um leið að styrkja starf Krabbameinsfélagsins.