Sveinn Margeir framlengir við KA út 2025
Sveinn Margeir Hauksson skrifaði í gær undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út árið 2025. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins þar sem tíðindunum er líst sem stórkostlegum „enda Sveinn Margeir algjör lykilmaður í liði KA sem tryggði sér þátttöku í Evrópukeppni á komandi sumri.“
Sveinn er 21 árs gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í stóru hlutverki í meistaraflokksliði KA frá komu sinni í félagið árið 2019. Á nýliðnu tímabili steig hann enn stærra skref og var í algjöru lykilhlutverki er KA endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og fór í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
Sveinn er frá Dalvík þar sem hann steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá Dalvík/Reyni. Þar sló hann í gegn og var meðal annars valinn í lið ársins í 3. deildinni sumarið 2018 á fotbolti.net.
Hann hefur nú leikið 60 leiki í efstu deild og bikarkeppni fyrir KA og gert í þeim 5 mörk en þar af voru 26 leikir á nýliðnu sumri og þar sem Sveinn gerði alls fjögur mörk. Í kjölfarið af frábærri frammistöðu í sumar var Sveinn valinn í U21 árs landslið Íslands sem mætti Tékklandi í umspili fyrir EM 2023.
„Það er ekki nokkur spurning að framtíðin er heldur betur björt hjá Sveini Margeiri og verður afskaplega spennandi að fylgjast áfram með framgöngu þessa magnaða kappa í gula og bláa búningnum,“ segir í tilkynningunni.