Narfi í Hrísey er fyrirmyndarfélag
Ungmennafélagið Narfi í Hrísey, sem er eitt af 21 aðildarfélagi innan ÍBA, hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Það var Hrund Teitsdóttir formaður félagsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar sérfræðings á Stjórnsýslusviði ÍSÍ. Fleiri Fyrirmyndarfélög eru innan Íþróttabandalags Akureyrar en í nokkru öðru íþróttahéraði og mun þeim fjölga enn frekar á næstunni.
„Við í Ungmennafélaginu Narfa í Hrísey erum bæði þakklát og stolt að hljóta viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það er markmið okkar að standa fyrir öflugu starfi og að vera til fyrirmyndar á öllum sviðum og því frábært að fá þessa viðurkenningu“ sagði Hrund Teitsdóttir formaður félagsins á vefsíðu ÍBA.