13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Völsungar höfðu betur gegn HK
Völsungur hafði sigur í miklum baráttuleik á heimavelli gegn HK á laugardag. Gestirnir byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinu nokkuð örugglega og voru þar með komnar með forystu. En heimastúlkur voru ekki á því að láta slá sig út af laginu og unnu 2. og 3. hrinu og staðan orðin 2 - 1 í hrinum talið. Í fjórðu hrinu var jafnt á með liðunum lengst af en gestirnir voru sterkari undir lokin og unnu hrinuna.
Oddahrinuna byrjuðu heimastúlkur af miklum krafti og nutu þess greinilega að spila. Þær héldu út alla hrinuna og unnu hana 15-6 og þar með leikinn 3-2.
Tamás Kaposi var eðlilega glaður eftir leik og sagði: „Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir okkur en það þurfti að hafa fyrir honum. Okkur gengur vel í deildinni en framundan er áframhaldandi vinna við að byggja upp unga leikmenn og hjálpa þeim að finna öryggi inni á vellinum”.