27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Vilja breytingar sem stuðla að auknu jafnræði og skynsemi í strandveiðum
Byggðaráð Norðurþings hvetur sjávarútvegsráðherra til að gera breytingar á strandveiðikerfinu sem stuðla að auknu jafnræði og skynsemi.
„Árið 2018 var gerð breyting á strandveiðikerfinu þannig að hægt er að moka upp pottinum á einu svæði landsins. Svæðin eru lokuð og mega bátar ekki færa sig um set nema flytja kennitölu í annað byggðalag,“ segir í ályktun sem Hjálmar Bogi Hafliðason, Framsóknarflokki lagði fram á fundi byggðaráðs.
Þar segir einnig að samkvæmt tölu Fiskistofu frá 1. júlí síðastliðnum, þegar tímabil strandveiða var hálfnað hafi verið búið að veiða rúm 72%, eða ríflega 7.200 tonn af 10 þúsund tonna þorskkvóta. Um tveir mánuðir eru nú eftir af veiðitímabilinu.
„Hafnasjóðir og sjómenn tapa fjármunum á svæðum B, C og D á meðan mokveiði er á svæði A úr sameiginlegum potti. En á svæði A var búið að veiða 58% af heildarkvótanum eða 4.127 tonn. Af því að svæðin eru lokuð og potturinn opinn hefur bátum á svæði A fjölgað um 100 síðan 2018 þegar kerfinu var breytt. Þeir voru 202 árið 2018 en eru komnir í 324 árið 2022,“ segir í ályktuninni.
Spornað gegn samþjöppun
Þá segir að óumdeilt sé að útgerð smábáta hafi spornað gegn samþjöppun og komið í veg fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af í hinum dreifðu byggðum. Strandveiðar yfir sumarið hafa tryggt útgerð hundruð smábáta sem landað hafa afla á tuga útgerðarstaða um land allt. Þannig hafa hafnarmannvirki fengið endurnýjað hlutverk ásamt þjónustuaðilum. Síðast en ekki síst hafa strandveiðarnar gefið nýjum aðilum tækifæri á að hefja útgerð.