Verið að rampa bæinn upp
Nú standa yfir i miðbænum á Akureyri framkvæmdir við að setja upp rampa en eins og kunnugt er þá tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi Haraldur Þorleifsson er hvatamaður verkefnisins.
Alls verða 1500 rampar gerðir á landinu í þessu átaki og er stefnan sú að þessi verki ljúki á landsvísu á þessu ári.
,,Þetta verða eitthvað á bilinu 40-50 rampar sem gerðir verða í bænum“, sagði Steindór Ívar Steindórsson hjá Umhverfis og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar. ,,Flestir i miðbænum en eins við Glerárgötu, úti i þorpi og víðar." ,,Einnig verður farið til Húsavíkur og rampað upp þar“ sagði Steindór Ívar að lokum.