Umhverfisverðlaun afhent í Hörgársveit
mth@vikubladid.is
Skipulags og umhverfisnefnd Hörgársveitar ákvað að veita annars vegar viðurkenningu fyrir lögbýli ársins og hins vegar fyrir lóð og umhverfisvænan lífstíl.
Björgvin Helgason ábúandi og eigandi Garðshorns í Kræklingahlíð hlaut umhverfisverðlaun Hörgársveitar fyrir lögbýli ársins. Erla Ágústsdóttir og Garðar Steinsson íbúar í Skógarhlíð 15 hlutu umhverfishverfisverðlaun Hörgársveitar fyrir fallega lóð og einkar umhverfisvænan lífstíl.