Umferð hópferðabíla um Innbæinn til skoðunar

Skipulagsfulltrúi mun leita upplysinga um fjölda ferða langferðabila um Innbæinn yfir sumartímann.  …
Skipulagsfulltrúi mun leita upplysinga um fjölda ferða langferðabila um Innbæinn yfir sumartímann. Mynd Vbl.

Umferð hópferðabíla um Innbæinn á Akureyri var til umræðu á fundi skipulagsráðs en á þeim fundi var lagt fram erindi frá Jóhanni Garðari Þorbjörnssyni um það efni.

Skipulagsráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að leita eftir upplýsingum um fjölda ferða hópferðabíla um Innbæinn yfir sumartímann og jafnframt að skoða hvort hluti götunnar, þ.e. Aðalstrætis verði gerður að einstefnu.

Þórhallur Jónsson, fulltrúi D-lista lagði fram bókun þar sem fram kemur að umferð um elsta hluta Akureyrar með ferðamenn hljóti að teljast hluti af afleiðingu markaðssetningar Akureyrarbæjar sem ferðamannabæjar og teljist því eðlileg.

Glórulaust að hefta umferð ferðamanna

„Kjósi fólk að búa við meiri friðsæld og minni umferð eru hverfi hér í bæ sem uppfylla klárlega þau skilyrði. Tel ég því glórulaust að fara að hefta umferð ferðamanna um Innbæinn þó á rútum séu, það mætti hins vegar bæta umferðina um Innbæinn með því að gera Aðalstræti að einstefnu (nema fyrir strætó) frá húsi nr. 13 til 21.

Ég tel því að það sé bruðl á almannafé að fara í aðrar aðgerðir að svo stöddu,“ segir í bókun Þórhalls.

Nýjast