Bæjarstjórinn í heimsókn í Grímsey
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, heimsótti Grímsey ásamt starfsfólki sveitarfélagsins. Tilgangur heimsóknarinnar var að eiga samtal við íbúa eyjunnar og fara yfir málefni sem snúa að aðkomu heimamanna.
Hópurinn heimsótti Miðgarðakirkju, þar sem uppbygging eftir brunann er í fullum gangi. Stefnt er að því að vígja kirkjuna í sumar. Einnig var nýr göngustígur skoðaður en stígurinn liggur meðfram vesturströnd eyjarinnar og var kláraður á síðasta ári. Með tilkomu stígsins eykst aðgengi að sögustöðum og fallegri strandlínu.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, heimsótti Grímsey ásamt starfsfólki sveitarfélagsins
Fundur var haldinn í félagsheimilinu Múla, þar sem rætt var um margvísleg málefni, svo sem lausagöngu búfjár, ástand gatna, húseignir bæjarins, mál er varða slökkviliðið auk umræðu um byggðakvóta og ferjumál.
Grímsey tók á móti hópnum með blíðskaparveðri sem gerði heimsóknina enn ánægjulegri segir á vefsíðu Akureyrarbæjar.