Gaza getur ekki beðið lengur - Kröfuganga til stuðnings Palestínu
Laugardaginn 22. mars nk. kl. 14 standa meðlimir í félaginu Ísland-Palestína fyrir kröfugöngu á Akureyri til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart ástandinu í Palestínu. Kröfugangan hefst við Akureyrarkirkju, gengið verður niður Gilið, inn Göngugötuna og að Ráðhústorgi, þar sem verður ræðuhald.
Þessi viðburður er systurviðburður mótmælanna sem félagið Ísland-Palestína stendur fyrir við Hverfisgötu 4 í Reykjavík, þar sem ríkisstjórnarfundnir eru haldnir, í þessari viku. Kröfurnar og mótmælin eru þau sömu hér á Akureyri.