Göngugatan verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá maí til loka september

Göngugatan verður lokuð fyrir umferð bíla frá 1. maí til 30. september 2025
Göngugatan verður lokuð fyrir umferð bíla frá 1. maí til 30. september 2025

Göngugatan verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá 1. maí til 30. september 2025.

 Málið var tekið fyrir og afgreitt á fundi bæjarstjórnar 18. mars 2025 þar sem tillaga um breytingu á samþykkt Akureyrarbæjar um verklagsreglur fyrir tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja var samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

afnframt var ákveðið að setja á göngugötuna þungatakmarkanir sem miðast við þriggja tonna heildarþunga.

Sumarið 2024 var göngugatan lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja alla daga, allan sólarhringinn, frá 3. júní til loka ágúst. Aðgengi var þó tryggt fyrir P-merkta bíla, ökutæki viðbragðsaðila og aðföng rekstraraðila á afmörkuðum tíma dags.

Í netkönnun sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri framkvæmdi fyrir Akureyrarbæ í kjölfar lokunarinnar kom fram að meirihluti bæjarbúa var ánægður með hana.

Frá þessu segir á akureyri.is

Nýjast