Þingeyjarsveit formlegur aðili að Gíg á Skútustöðum
Nýverið undirrituðu Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri og Ingibjörg Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri Vatnajökulsþjóðgarðs samning um aðstöðu í Gíg. Með samningnum fær Þingeyjarsveit aðgengi að 6 skrifborðum í skrifstofurými Gígs, auk aðgengis að næðisrýmum, fundaherbergjum, sameiginlegri kaffistofu, setustofum og þráðlausu neti. Skrifstofuhúsgögn fylgja einnig fyrir hverja starfsstöð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Þar segir að með þessum samningnum verði Þingeyjarsveit formlegur aðili að því skemmtilega starfi sem nú sé að byggjast upp í Gíg þar sem Vatnajökulsþjóðgarður, Umhverfisstofnun, Landgræðslan og Náttúrurannsóknastöð við Mývatn hafa einnig aðstöðu. Í gegnum Þingeyjasveit mun svo Þekkingarnet Þingeyinga og Hulda náttúruhugvísindasetur öðlast formlegan aðgang að Gíg.
Sýning um mann og náttúru
Á sama tíma opnaði sýningin Landvörður í sýningarými Gígs. Landvörður er verk eftir listakonuna Jessicu Auer sem áður hefur verið sett upp í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Verkið mun vera til sýnis í gestastofunni í Gíg í sumar.
Jessica Auer er kanadísk listakona sem hefur verið búsett á Íslandi og í Kanada um árabil. Sigrún Alba Sigurðardóttir semur textann sem leiðir okkur í gegnum sýninguna og sýningarstjóri verksins í Gíg er Ragnhildur Ásvaldsdóttir.
„Verkið Landvörður fjallar um sameiginlega ábyrgð okkar allra á náttúrunni. Það sýnir okkur bæði hvernig við snertum landið og hvernig við leyfum því að snerta okkur, hreyfa við okkur. Landvörður fjallar þó ekki aðeins um þau sem vernda landið og þau sem nýta landið heldur líka um landið sjálft og lífshætti okkar á jörðinni, hvernig allt tengist og flæðir saman. Við erum óteljandi eindir sem eiga sér ótal snertifleti, erum öll hluti af heild,“ segir Sigrún Alba um verkið.