Þemadagar í Borgarhólsskóla

Borgarhólsskóli á Húsavík. Mynd: epe
Borgarhólsskóli á Húsavík. Mynd: epe

Þriðjudaginn 29. nóvember til 1. desember voru þemadagar í Borgarhólsskóla.

Kennsla var með óhefðbundnum hætti þessa daga og nemendum blandað í hópa þvert á aldur. Þemað var samvinna og sköpun og hóparnir fengust við mismunandi verkefni.
Flestum í skólanum finnst mjög gaman að brjóta upp skólastarfið með svona þemadögum en sumum reynist þetta erfitt. Sumum unglingum fannst t.d. erfitt að hafa marga yngsta stigs nemendur í eftirdragi og þurfa að vinna alla vinnuna.

Blaðamaður Vikudags.is leit inn í morgun og kynnti sér hvað krakkarnir eru að brasa. Á næstu dögum verða svo birt myndbönd, viðtöl og fréttir sem nemendur borgarhólsskóla hafa unnið sjálf. Vert er að minna á það að á morgun klukkan 08:15 - 09:00 verður opið hús í borgarhólsskóla þar sem afrakstur Þemadaga 2016 verður til sýnis.

Verkefnin sem unnin voru þessa daga eru:

Skátar : Skátarnir hjálpa þér um leið, hljálpa þér í neyð.

Rapp : Nemendur búa til myndbönd, rappa, hlusta á tónlist og læra um uppruna rappsins.

Fjölskylda : Rannsaka ýmislegt sem tengist fjölskyldunni, tengsl, þarfir og búa til fjölskyldu leikrit.

Brúðuleikhús : Þau eru að búa til brúður og leikrit og ætla svo að setja upp brúðuleikhús.

Fjölmiðill : Kynna sér fjölmiðla og koma frá sér efni á mjölmiðlum.

Útvarpsleikrit : Semja útvarpsleikrit og útvarpsþátt, taka upp og útvarpa afrakstrinum.

Garpar : Þau eru að búa til borðspil og stuttmynd.

Ævintýrahópur : Leika ævintýri, semja skriflegt ævintýri, myndasögu ævintýri, breyta gömlum ævintýrum og búa til ný, gera skoðunnarkönnun um uppáhalds ævintýri nemanda skólans.

Íþróttafélag : Þau eru að búa til nýtt íþróttafélag.

Fuglavinir : Allskonar verkefnavinna um fugla.

Hjálparsamtök : Búa til eigin hjálparsamtök, Samtök Hálfsvangra Barna Í Borgarhólsskóla. Einnig aðstoða þau í Hvammi, leikskólanum Grænuvellir og Miðjunni.

Teiknimyndasögur : skoða, teikna og búa til teiknimynda fígúrur og sögur.

Nýjast