Syngjandi sveifla á Græna hattinum um helgina

Geirmundur Valtýsson hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins.
Hann hefur komið fram á öllum helstu tónlistar- og útihátíðum landsins, og sungið í án efa flestum félagsheimilum og tónleikahúsum landsin. Árið 2008 hélt Geirmundur upp á 50 ára „bransaafmæli“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar sem hann troðfyllti íþróttahúsið og mörghundruð manns mættu.
 
Geirmundur gaf út sína fyrstu breiðskífu ,,Í syngjandi sveiflu" árið 1989, og síðan eru plöturnar orðnar tólf. Það er óhætt að segja að flestar plötur Geirmundar hafi slegið í gegn, og hefur hann verið duglegur við að koma ungu fólki á framfæri, til dæmis með plötunni ,,Skagfirðingar syngja" árið 2015, þar sem fjöldi ungra Skagfirðinga, ásamt eldri, sungu lög hans.
 
Nú ætlar hann að mæta á Græna hattinn á Akureyri með harmonikkuna og hljómborðið ásamt Stefáni Gíslasyni píanóleikara, Finnboga Kjartanssyni á bassa og Jóa Færeyingi trommara að syngja sín allra þekktustu lög með aðstoð fólksins í salnum sem má gjarnan syngja með. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 á laugardagskvöld.
Lög eins og Með vaxandi þrá, Ort í sandinn, Ég syng þennan söng, Lífsdansinn ofl. ofl.
Auk Geirmundar á Græna hattinum þessa helgina verða Helgi og Hljóðfæraleikaranir á fimmtudagskvöld og Sólstafir á föstudagskvöld.
 
 

Nýjast