Sveitarstjóri verður hafnarstjóri
Byggðaráð Norðurþings fjallaði í dag um það að Hafnarstjóri Norðurþings hefur sagt starfi sínu lausu. Ráðið lagði til að sveitarstjóri verði jafnframt hafnastjóri og að Norðurþing auglýsi eftir rekstrarstjóra hafna á næstu dögum.
„Byggðarráð samþykkir að gera þá breytingu að sveitarstjóri Norðurþings verði jafnframt hafnarstjóri Norðurþings.
Byggðarráð felur stjórnsýslustjóra að vinna að þeim breytingum og uppfærslum sem þessar breytingar hafa m.a. í för með sér á samþykktum og leggja fyrir ráðið til samþykktar í byrjun ágústmánaðar,“ segir í bókun byggðaráðs.