Stórtíðindi fyrir norðurslóðabæinn Akureyri
Um áramótin sameinaðist Stofnun Vilhjálms Stefánssonar (SVS), Háskólanum á Akureyri. Breytingin öðlaðist gildi 1. janúar 2025 en fyrir sameiningu hafði stofnunin heyrt undir Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið frá því hún var stofnuð árið 1998. Sameiningin er liður i að efla enn frekar áherslu HA og háskólasamfélagsins á norðurslóðarannsóknir.
Mun skýra áherslur og auka samræmingu í málefnum Norðurslóða
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, fagnar sameiningunni. „Landfræðilegt mikilvægi Norðurheimskautsins fer vaxandi ásamt hlutverki Íslands á svæðinu og hefur það leitt til vaxandi eftirspurnar eftir hágæða upplýsingum og sérþekkingu. Norðurslóðastefna Íslands skilgreinir Akureyri sem miðstöð íslenskrar þekkingar og alþjóðlegrar sérfræðiþekkingar í málefnum Norðurslóða. Samruninn við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, stofnun sem er þekkt og virt á alþjóðavettvangi, mun hjálpa til við að skýra áherslur og samræmingu í starfi skólans hvað varðar norðurslóðir. Þetta skref er svo sannarlega í þá átt að við vinnum áfram að því að efla sérstöðu okkar í málefnum norðurslóða og ég fagna því.“
HA og SVS hafa unnið náið saman um árabil og eiga nú þegar í margvíslegu samstarfi um kennslu og rannsóknir. Með samrunanum skapast tækifæri til að efla enn frekar gjöfult samstarf innan sameinaðrar stofnunar og starfsfólk Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar lítur björtum augum til framtíðarinnar.
Akureyri-miðstöð norðurslóðamálefna
„Háskólinn á Akureyri lítur á þessa sameiningu sem tækifæri til að gera norðurslóðastarf HA enn sýnilegra, efla rannsóknir þvert yfir háskólann sem tengjast norðurslóðum. Einnig er þetta tækifæri til að efla enn frekar sókn í erlenda styrki og auka samstarf okkar við erlenda aðila,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA.
Stofnunin verður séreining innan skólans sem mun heyra undir Hug- og félagsvísindasviðs og verður áfram með aðalskrifstofur í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi sem staðsett er á háskólasvæðinu. Á háskólasvæðinu hefur þróast samfélag og lifandi miðstöð stofnana sem vinna að norðurslóðamálum enda Akureyri skilgreind sem miðstöð norðurslóðamálefni Íslands í Norðurslóðastefnu Íslands.
„Hið góða orðspor SVS, forystuhlutverk stofnunarinnar í rannsóknarverkefnum Evrópusambandsins og í framtaksverkefnum Norðurskautsráðsins mun styrkja töluvert áherslur háskólanna í málefnum norðurslóða,“ segir Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs.
Háskólinn á Akureyri er norðurslóðaháskóli sem er með það að markmiði að efla rannsóknir og verkefni slóðunum tengdum og er þetta einn liður í átt að því markmiði. Búið er að opna vefsíðu vegna þeirra verkefna sem stofnunin mun sinna forystu í og um starfsemina í heild. Hana er hægt að finna á heimasíðu skólans, unak.is
https://www.unak.is/english/research/arctic