Stórt skerf í að tryggja að réttindi fólks falli ekki niður
Skrifað hefur verið undir samstarfssamning um nýtingu réttinda félagsmanna milli Einingar-Iðju og Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni. Það voru Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, og Eiður Stefánsson, formaður FVSA, sem undirrituðu samninginn. Samningurinn mun gilda til að byrja með í eitt ár og verður endurskoðaður mánuði áður en hann rennur út. Þetta kemur fram á vefsíðu Einingar-Iðju.
Markmið samstarfsins er að auðvelda félagsmönnum aðgang að þeim réttindum sem þeir þegar hafa öðlast hjá öðru félaginu þegar þeir þurfa að færa sig milli félaga vegna breytinga á starfsvettvangi. Samstarfið felur í sér samnýtingu iðgjalda félagsmanna félaganna vegna fræðslusjóðs, orlofssjóðs og sjúkrasjóðs félaganna.
Tilgangur samstarfsins er að telja saman réttindi félagsmanns hjá hvoru félaginu, í þeim tilgangi að félagsmaður þurfi ekki að bíða ávinnslutíma réttinda sinna heldur getur nýtt það sem þegar hefur áunnist hjá fyrra félagi og hinu nýja. Núverandi regla um 6 mánaða rétt eftir síðustu greiðslu gildir áfram en annars gildir sú regla að greitt hafi verið a.m.k. samtals 6 mánuði til beggja félaganna.
Fyrst félaga til að gera slíkan samning
Björn segir í frétt á vefsíðu Einingar, að félögin hafi í raun unnið á þessum nótum undanfarin ár en við ákváðum að setja þessar reglur á blað núna. „Ég veit ekki betur en að Eining-Iðja og FVSA séu þar með fyrst félaga innan ASÍ til að gera slíkan samning. Þetta er mikill gleðidagur því með þessu erum við að stíga stórt skref í að tryggja að réttindi fólks detti ekki niður þegar viðkomandi flytur sig á milli félaganna. Ég vona að svona samningur verði gerður við fleiri félög sem fyrst. Samningurinn mun líka verða til þess að við gerum meiri kröfu á að félagsmenn verði í þeim félögum sem hefur samningsumboð fyrir viðkomandi.“
Tímamótasamningur
Eiður segir að þetta sé tímamótasamningur. „Þetta gerir félagsmönnum auðveldara að fara á milli félaga og vera í réttu stéttarfélagi sem skiptir gríðarlegu miklu máli. Þá er ég að tala um að vera í því stéttarfélagi sem er með þann kjarasamning sem starfsmaðurinn er að fá greidd laun eftir. Loksins kláruðum við þetta og ég vona að þetta sé upphafið af fleiri svona samningum á milli allra stéttarfélaga.“