Stígagerð frá Hamraafleggjara fram í Kjarnaskóg haldið áfram

Stígsstæðið           Mynd gn
Stígsstæðið Mynd gn

Nesbræður ehf áttu lægsta tilboð í gerð göngu-hjólastígs frá afleggjara upp að Hömrum og inn í Kjarnaskóg til suðurs. Tilboð Nesbræðra hljóðaði upp á tæplega 33,3 milljónir króna.

Umhverfis- og mannvirkjaráð hefur samþykkt að ganga til samninga um verkefnið, en þrjú tilboð bárust í það. Auk Nesbræðra buðu fyrirtækin Finnur efh og Þverá Golf í verkið. Þetta er seinni áfangi verksins, en sá fyrri var stígur sem liggur frá Naustahverfi, Kjarnagötu og að Hömrum.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði segir að hugmyndin sé að hefja stígagerðina og ljúka verkinu með lagfæringum á gatnamótum Kjarnavegar/Hamravegar.  Stígurinn verður malbikaður frá Hamraafleggjara og að Kjarnaskógi.

 „Um leið og við erum komin inn í skóginn breytist hann í sallastíg, en þar er slíkur stígur fyrir sem verður lagfærður,” segir Jónas. Einnig verða ljósastaurar settir upp alla leið inn í skóginn.

Áætlað er að ljúka verkinu fyrir næsta vetur.

 


Athugasemdir

Nýjast