27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Stefanía stóð sig vel
Stefanía Daney Guðmundsdóttir í íþróttafélaginu Eik stóð sig frábærlega vel á Norðurlandamóti í frjálsum íþróttum í Bollnäs, Svíþjóð sem fram fór dagana 19. til 21. ágúst síðastliðinn.
Hún varð Norðurlandameistari í 100 og 200 metra hlaupi sem og einnig langstökki sem er hennar aðalgrein. Stefanía tók svo silfur í spjótkasti á nýju íslandsmeti. Í lok móts var Stefanía valinn íþróttamaður mótsins frábær árangur hjá okkar konu.