27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Sólgarður til sölu
Sólgarður í Eyjafjarðarsveit hefur verið auglýstur til sölu. Óskað er eftir tilboðum í eignina þar sem getið er um fjárhæð og lýsingu tilboðsgjafa á hvers kyns starfsemi fyrirhuguð er í eigninni. Við mat á tilboðum áskilur seljandi sér rétt til að horfa m.a. til fyrirætlana tilboðsgjafa um framtíðarnýtingu eignarinnar. Seljandi áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðsfrestur er til 28. okt kl. 12. Og skal skila tilboðum inn á Fasteignasöluna Byggð á Akureyri
Um er að ræða húsnæði sem áður hýsti félagsheimilið Sólgarð, undanfarið hefur fasteignin hýst starfsemi Smámunasafnins. Ekki er getið um stærð eignarinnar í skrám Þjóðskrár Íslands en skv. grófum mælingum er stærð eignarinnar nálægt 750 fm. Í grunninn má segja að eignin skiptist í fjóra hluta en það eru bílskúr sem er 56 fm. að stærð og stendur stakur á lóðinni norðan safnsins, íbúð á efri hæð í norðurenda, safnið sjálft um 450 fm. eða öll jarðhæð eignarinnar, að lokum íbúðarrými á efri hæð í suðurenda. Ástand eignarinnar er nokkuð, gott ytra byrði húss er í lagi, þak virðist vera í lagi, einhverja glugga þarf að skipta um eins og gengur.
Húsið var áður nýtt sem félagsheimili sveitarinnar og jafnframt sem kennsluhúsnæði. Inngangur að sunnanverður og efri hæðin að sunnan eru elstu hlutar eignarinnar þar var skólahúsnæði til að byrja með. Miðhluti sem hýsir nú safnasalinn var II áfangi eignarinnar þar er lofthæð meiri. Þriðji hlutinn er síðan að norðan þar sem er nú aðalinngangur í húsnæðið, móttaka, veitingasalur og snyrtingar.
Húsið stendur á 10.000. fm. leigulóð.