20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Solander 250 í Safnahúsinu á Húsavík
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi verður opnuð í Safnahúsinu á Húsavík 22. Júlí nk. Sigríður Örvarsdóttir er forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga mun sjá um uppsetningu sýningarinnar á Húsavík.
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp í söfnum á Íslandi til að minnast þess að árið 2022 voru 250 ár liðin frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772.
Í þeirri för var meðal annars sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander sem var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carls von Linné. Solander safnaði og skrásetti margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu þjóðar og siði.
Á sýningunni túlka tíu íslenskir grafíklistamenn atburðina og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð í aldanna rás. Á sýningunni Paradise Lost – Daniel Solander‘s Legacy, sem ætlað er að minnast ferðar Solander til Kyrrahafsins árið 1769, má sjá verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu og áhugaverða túlkun þeirra á þessari fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu.
Sýningarnar tvær mynda einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í ljósi ferða Solanders og eru settar upp í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík. Pär Ahlberger sendiherra Svíþjóðar á Íslandi opnar sýningarnar.
Menningarmiðstöð Þingeyinga (MMÞ) starfrækir fjögur söfn og geymir sjö safneignir og ýmsar menningarminjar Þingeyinga. í Safnahúsinu á Húsavík, sem er stærst safnanna, er að finna tvær áhugaverðar fastasýningar, þ.e. annars vegar sjóminjar í Sjóminjasafni Þingeyinga og hins vegar Samtal manns og náttúru í Þingeyjarsýslum í 100 ár sem unnin er aðallega úr munum safneignar Byggðasafns S-Þingeyinga og dýrum, plöntum og sjávarskepnum úr Náttúrugripasafns Þingeyinga. Að auki eru þar tvö rými sem nýtt eru undir tímabundnar list- og sögusýningar og í öðru þeirra, myndlistarsalnum, opnar einmitt sýningin Solander 250 - Bréf frá Íslandi þann 22. júlí næstkomandi.
Sigríður Örvarsdóttir er forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga og safnstjóri og mun sjá um uppsetningu sýningarinnar á Húsavík. Hún segir það gott og gagnlegt fyrir safnið að vera með í Solander 250 verkefninu þar sem umfjöllunarefnið, íslensk náttúra, skírskotar til sýninga og safneigna MMÞ og ákveðin og áhugaverð tenging verði þannig á milli allra sýninga Safnahússins í sumar.