20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Söfnin opin á Eyfirskum safnadegi
Eyfirski safnadagurinn verður haldinn á fimmtudag, Sumardaginn fyrsta, 20. apríl en þann dag opna söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi.
Eyfirski safnadagurinn var fyrst haldinn árið 2007 og verið haldinn árlega síðan, fyrir utan þegar einn lítinn heimsfaraldur setti strik í reikninginn 2020.
Sumardaginn fyrsta opna 13 söfn og sýningar við Eyjafjörð dyr sínar fyrir gestum og gangandi undir heitinu Eyfirski safnadagurinn. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð.
Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum. Samræmdur opnunartími safnanna er frá 13.00 – 16.00 en sum eru með opið lengur. Mælum með að áhugasamir fylgist með opnunartímum og dagskrá á samfélagsmiðlum safnanna.
Söfnin sem opna dyr sínar eru Hælið, Listasafnið á Akureyri, Flugsafnið, Iðnaðarsafnið, Minjasafnið, Nonnahús, Davíðshús, Leikfangasafnið, Mótorhjólasafnið, Hús Hákarlajörundar, Síldarminjasafnið, Flóra menningarhús í Sigurhæðum og Smámunasafn Sverris Hermannssonar.
Margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn