Sjallinn á förum?

Dregur nú loks til tíðinda við Glerárgötu 7?
Dregur nú loks til tíðinda við Glerárgötu 7?

Bæjarstjórn er i framkvæmdahug  og  auglysir einnig  Glerárgötu 7 og tillögu á breytingu á deiliskipulagi miðbæjarins á þessari margumræddu lóð.

Á heimasíðu bæjarins  má sjá þetta um lóðina frægu sem stundum er kölluð Sjallareitur.

,,Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.Deiliskipulagstillagan á við um lóðina Glerárgötu 7 þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa 5-6 hæða hótel þar sem efstu tvær hæðirnar eru inndregnar. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara að hámarki 1200 m2 fyrir allt að 38 bílastæði."

Frestur til að gera athugasemd við tillöguna rennur út 14 mai nk. 

Nýjast