Símenntun HA tekur við námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
Símenntun HA tekur við námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf frá og með næsta hausti. Skrifað var undir samstarfssamning þar um á dögunum.
„Við erum afar stolt af því að taka við þessu verkefni og hlökkum til að geta boðið upp á þetta nám sem hluta að ört vaxandi námsframboði hjá Símenntun HA. Það er vaxandi þörf fyrir ráðgjafamenntað fólk á öllum sviðum og er námið frábært tól fyrir stjórnendur og aðra,“ segir Stefán Guðnason forstöðumaður Símenntunar HA á vef Símenntunar. Námið hafði áður farið fram í gegnum SÁÁ samhliða starfsþjálfun á heilbrigðisstofnununum SÁÁ.
Starfsheitið áfengis- og vímuefnaráðgjafi var lögleitt árið 2006 og er í dag lögverndað starfsheiti. SÁÁ hefur útskrifað fjölda nemenda sem starfa vítt og breitt um heilbrigðiskerfið, „en betur má ef duga skal í ört vaxandi fíknisamfélagi sem einskorðast ekki einungis við áfengi og vímuefni. Ljóst er að fíknin teygir sig víða og mikilvægt sé að líta á vandann með gleiðlinsu og verða því fíkniráðgjafar enn eftirsóttari innan heilbrigðiskerfisins,“ segir á vef Símenntunar.
Símenntun HA mun bjóða upp á nám í fíkniráðgjöf með sveigjanlegu formi frá og með haustinu 2023. Skráning opnar á næstu dögum en námið verður sett upp sem fjarnám með staðarlotum og starfsnámi.