20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Síðuskóli fékk Grænfánann í níunda skipti
Í dag fékk Síðuskóli Grænfánann afhentan í níunda skipti við hátíðlega athöfn í íþróttasal skólans. Greint er frá þessu á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Ólöf Inga Andrésdóttir, skólastjóri, flutti ávarp og nemendur í umhverfisnefnd kynntu Samgöngusáttmála Síðuskóla sem gerður var í vetur. Nemendur í 4. bekk sungu lag og Síðuskólasöngurinn var sunginn.
Í vetur var haldin myndasamkeppni til að hanna skilti fyrir bílastæði og sleppisvæði skólans. Tilgangurinn er að minna þá sem koma á bíl að drepa á honum meðan beðið er við skólann. Tvær myndir voru valdar, skilti gerð og verða þau sett á bílastæði skólans á næstunni. Þessi skilti voru sýnd á hátíðinni í dag.
Það var Rán Þórarinsdóttir, fulltrúi Landverndar, sem afhenti skólanum viðurkenningarskjal og umhverfisnefnd tók við Grænfánanum. Að lokum var fáninn dreginn að húni.