Samstarf um jólaaðstoð
Fjögur samtök munu vinna saman í ár að jólaaðstoð á Eyjafjrðarsvæinu og var samningur um verkefnið undirritaður í dag. Um er að ræða Hjálpræðisherinn á Akureyri, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Akuryeri og Rauða Krossinn við Eyjafjörð.
Þessi samtök unnu saman í fyrra og gafst það samstarf vel, þá var úthlutað 303 styrkjum í formi greiðslukorta sem hægt var að versla fyrir í ákveðnum verslunum.
Fjáröflun er hafin til að kosta þessa aðstoð og hefur fyrirtækjum verið send beiðni til að styðja hana.