27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Sala á Landsbankahúsinu tíðinda að vænta n.k. föstudag
Það kemur í ljós n.k. föstudag við hverja bankaráð LÍ gengur til viðræðna við vegna sölu bankans á Landsbankahúsinu
Eins og fram kom í frétt á vefnum fyrr í morgun er mikill áhugi á Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri en frestur til þess að leggja fram kauptilboð í húsið rann út s.l. föstudag.Menn verjast allra fregna þegar spurt er um fjölda tilboða sem bárust en heyrst hefur að þau séu á bilinu 5-7 talsins. Ath. þetta eru óstaðfestar tölur.
Það sem þó er víst i þessu sambandi er að bankaráð Landsbankans kemur saman til fundar n.k. föstudag, ráðið tekur þá afstöðu til tilboða og ákveður við hverja verður gengið til viðræðna um kaup á þessu umtalaða húsi í hjarta bæjarins.