Reykjavík er höfuðborg okkar allra

Við undirrituð, bæjar- og sveitarstjórar á Íslandi, mótmælum öll lokun annarrar af tveimur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar með tilheyrandi skerðingu á þjónustu og ógn við innanlandsflug sem þar af hlýst.

Fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins hefur þangað að sækja ýmis konar miðlæga þjónustu á vegum hins opinbera, þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir almannafé. Öll höfum við jafnan rétt til að nýta þá þjónustu. Stjórnsýslan í Reykjavík er stjórnsýsla okkar allra. Reykjavík er höfuðborg okkar allra.

Lengi hefur verið rætt um að flytja Reykjavíkurflugvöll burtu úr Vatnsmýrinni en öllum má ljóst vera að það gerist ekki á næstu árum eða jafnvel áratugum. Allt tal um að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur lýsir skilningsleysi á aðstöðu okkar sem búum úti á landi. Fjarlægðin frá alþjóðaflugvellinum til höfuðborgarinnar er hættuleg hindrun, stórt ljón í veginum, fyrir fólk sem þarf að reka erindi sín í höfuðborginni, hvort sem það er fullfrískt eða í sjúkrabörum.

Öll röskun á sjúkraflugi til höfuðborgarinnar þar sem Landspítalann okkar allra er að finna, er grafalvarlegt mál sem getur skilið á milli lífs og dauða. Eitt mannslíf er í okkar huga meira virði en vöxtur og viðgangur 1.000 trjáplantna.

Af okkur sem skrifum undir þessa grein hafa flest beina persónulega reynslu af því hvernig mínútur geta skipt sköpum þegar líf og heilsa ástvina hangir á bláþræði. Öll höfum við í það minnsta haft spurnir af slíkum tilvikum í okkar nánasta umhverfi. Að nefna tilfinningaklám í þessu samhengi, eins og gert var í þættinum Silfrið á RÚV á mánudagskvöld, er sannarlega ekki við hæfi.

Við undirrituð mótmælum því að trjágróður í Öskjuhlíð njóti forgangs þegar um líf og heilsu fólks utan af landi er að ræða. Árlega eru 630-650 sjúklingar fluttir til Reykjavíkur með sjúkraflugi samkvæmt upplýsingum frá Miðstöð sjúkraflugs og þar segir enn fremur að í um 45% tilfella sé „um að ræða sjúklinga sem nauðsynlega þurfa að komast í bráða þjónustu á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, þar með talið sjúklingar sem þurfa að komast í tímaháð inngrip, s.s. vegna bráðra kransæðaþrenginga, heilablóðfalla og háorkuáverka. Í slíkum tilfellum er ástand sjúklinga með þeim hætti að lengdur flutningstími sem myndi hljótast vegna flutnings frá Keflavíkurflugvelli getur dregið verulega úr lífslíkum eða batahorfum viðkomandi. Í þeim tilfellum, sem ekki teljast bráð, er ljóst að umræddar takmarkanir á notkun Reykjavíkurflugvallar munu hafa verulega hamlandi áhrif á aðgengi sjúklinga af landsbyggðinni að heilbrigðisþjónustu og fráflæði sjúklinga frá Landspítala.“ Þetta er ekkert tilfinningaklám.

Þegar fyrirvarinn er skammur getur skjótt inngrip færustu sérfræðinga á þjóðarsjúkrahúsinu skilið á milli lífs og dauða.

Við krefjumst þess að austur-vestur flugbrautin á Reykjavíkurflugvelli verði opnuð strax aftur á sama tíma og öryggi flugs um brautina verði tryggt með því að fella þau tré sem fella þarf.

Með vinsemd og virðingu,

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar

Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Nýjast