Réttað í Húsavíkurrétt: Myndir

Frissi Jónasar var ánægður með heimt fé. Ljósmynd: epe
Frissi Jónasar var ánægður með heimt fé. Ljósmynd: epe

Frístundabændur á Húsavík réttuðu í Húsavíkurrétt í gær sunnudag, þar var margt um fólk og fé og gleðin skein úr hverju andliti eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Upphaflega áttu réttirnar að fara fram á laugardeginum en vegna veðurs var þeim frestað til sunnudags. Hægt er að skoða myndirnar í stærri upplausn með því að smella á þær.

Húsavíkurrétt

 

Þeir feðgar Jónas Halldór Sigurmundsson og Sigurmundur Friðrik voru samstíga í talningum eins og alltaf, og þeir töldu oft til að vera vissir.

Húsavíkurrétt

 

Trausti Aðalsteins kennir ungviðinu að þekkja mörkin.

Húsavíkurrétt

 

Píparar og Lundarar voru með marga fulltrúa á sunnudaginn.

Húsavíkurrétt 2016

 

Þau voru bæði hröð handtökin og traust við að koma fénu á kerruna.

Húsavíkurrétt 2016

 

Kidda Lund leiddist ekki í réttunum.

Húsavíkurrétt 2016

 

Ef marka má svipinn á Aðalsteini Á. Baldurssyni eða Kúta, gangnaforingja og formanni húsvískra fjáreigenda þá var hann ánægður með dilkastærð þetta haustið.

Húsavíkurrétt 2016

 

Sveinn Freysson dregur dilk á eftir sér, fáir búa yfir jafn mikilli reynslu við meðhöndlun sauðfjárafurða á öllum stigum framleiðsluferlisins.

 

Nýjast