27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Rekstrarsamningur við Nökkva endurnýjaður
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Tryggvi Jóhann Heimisson formaður Nökkva og Kári Ellertsson stjórnarmaður Nökkva. Mynd/Akureyri.is
Á mánudag var undirritaður nýr rekstrarsamningur milli Akureyrarbæjar og Siglingaklúbbsins Nökkva sem byggir á þeim samningi sem aðilar gerðu með sér í september á síðasta ári þegar nýtt aðstöðuhús á félagssvæði Nökkva var tekið í notkun. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.
Samkvæmt samningnum, sem gildir út árið 2026, skal Siglingaklúbburinn Nökkvi sjá um rekstur og umsjón félagssvæðisins, þ.m.t. aðstöðumannvirki, ásamt íþróttatengdri starfsemi.