Pharmarctica á Grenivík byggir 1500fm viðbyggingu
Síðasta sperran í nýrri viðbyggingu við fyrirtækið Pharmarctica var reist nú fyrr í dag. „Má með sönnu segja að veðrið er búið að leita við okkur í framkvæmdunum, en ekki er alvanalegt að snjólaust sé hér á víkinni þegar liðið er undir lok nóvember,“ segir í frétt á vefsíðu félagsins. Á dögunum luku verktakar við að steypa plötuna í viðbygginguna.
Viðbyggingin er um 1500 fermetrar sem koma til með að samanstanda af framleiðsluaðstöðu, lager, rannsóknarstofu og skrifstofum og verður kærkomin viðbót við þá 560 fm sem nú þegar eru í notkun.
Allur framleiðslubúnaður sem verður til staðar í húsnæðinu verður afar vandaður og kemur frá Þýskalandi. Búnaðurinn uppfyllir kröfur sem gerðar eru til lyfjaframleiðslu og framleiðslu á lækningatækjum.
Áherslan verður fyrst og fremst að efla alla þá starfsemi sem fyrir er í félaginu og að geta fylgt íslenskum vörumerkjum á erlenda markaði ásamt því að taka inn stærri viðskiptavini.
Pharmarctica er nú þegar með GMP vottun frá Lyfjastofnun Íslands ásamt vottun frá Ecocert – Organic og Ecocert – Cosmos natural. Að framkvæmdum loknum er fyrirhugað að sækja um ISO 13485 vottun
Þetta kemur fram á vefsíðu Pharmarctica