20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Orkan opnar nýja stöð á Möðrudal
Orkan hefur opnað nýja þjónustustöð við þjóðveg 1 á bænum Möðrudal á Möðrudalsöræfum, þar sem boðið verður upp á 95 oktana bensín og dísil. Stöðin mun þjónusta svæði þar sem lengi hefur vantað eldsneytissölu og verður stöðin ekki síst mikilvæg fyrir þá sem eru á leiðinni upp á hálendi Norðausturlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkunni.
Í tilkynningunni kemur fram að haldið hefi verið í upprunann í Möðrudal en þar stendur fallegur burstabær. Því verði eldsneytistankar Orkunnar einnig byggðir inn í burstabæ og stefnt sé á að hefja smíðavinnu í júlí.
„Það er frábært að fá Orkuna til okkar þar sem viðskiptavinir leita reglulega hingað með tóman tank. Á þessu svæði er mikið um hálendisferðalanga og frábært að geta aukið þjónustu við þann hóp sem er hér á ferðinni,“ segir Vilhjálmur Vernharðsson, ábúandi á Möðrudal á Fjöllum.
„Við erum spennt að opna Orkustöð á Möðrudal og auka þjónustustigið á Norðausturlandi. Við sjáum þörfina á þessu svæði og erum gríðarlega ánægð að fá að taka þátt í uppbyggingunni á Möðrudal með Vilhjálmi,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.