Öll í viðbragðsstöðu vegna veðurs

Meðfylgjandi myndi tók Andrés Rein Baldursson á Oddeyri á Akureyri 25. september sl.
Meðfylgjandi myndi tók Andrés Rein Baldursson á Oddeyri á Akureyri 25. september sl.

Spáð er afar slæmu veðri á sunnudag, 9. október, og óttast að sambærilegar aðstæður geti myndast á Akureyri og urðu 25. september sl. þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli miklu tjóni. Vegna þessa hafa viðbragðsaðilar frá Norðurorku, Akureyrarbæ og Hafnarsamlagi Norðurlands gripið til ýmissa ráðstafana og aðgerðastjórn Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar hefur verið virkjuð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla. 

Veðurstofa Íslands spáir norðan 18-25 m/s með mikilli úrkomu, slyddu við ströndina, annars snjókomu. Miklar líkur eru á að ísing setjist á raflínur og valdi truflunum á afhendingu rafmagns. Fólki er bent á að ganga vel frá utandyra og koma búfénaði í skjól. Miklar líkur á að færð spillist og ekkert ferðaveður verður á meðan viðvörunin er í gildi. Stórstreymt er á sunnudagskvöld og spáð talsverðri ölduhæð. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs verður í gildi fram á mánudagsmorgun.

Á Oddeyri og víðar um bæinn hefur verið gengið úr skugga um að niðurföll og holræsakerfi séu opin og án fyrirstöðu. Einnig hefur verið unnið að viðgerðum á varnargörðum eins og hægt er. Hætt er við að truflanir verði á rafmagni og því er lögð áhersla á að tryggja varaafl í öllum veitum Norðurorku. Reikna má með að vatnsveðrið valdi miklu álagi á allt fráveitukerfi bæjarins og gangi þessi slæma veðurspá eftir, mun veðrið að öllum líkindum hafa vandræði í för með sér víðar um bæinn en á Oddeyri og Óseyri. Nægur mannskapur verður til taks og hefur hann yfir að ráða öllum þeim tækjabúnaði sem nauðsynlegur er við þær aðstæður sem kunna að skapast, vel útbúnum bílum og vinnuvélum. Vert er að vekja athygli á því að rafmagnstruflanir kunna að valda skemmdum á viðkvæmum búnaði af ýmsu tagi hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Upplýsingar um góð ráð komi til þjónusturofs.

Neyðarstjórn Norðurorku hefur verið virkjuð og starfsmenn Akureyrarbæjar eru í viðbragðsstöðu. Aðgerðarstjórn Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar fundaði í morgun og kemur aftur saman til fundar í fyrramálið.

Nýjast