Nýtt meistarnám í Velsældarfræðum hlýtur myndarlegan styrk

Á myndinni eru frá vinstri Brynja Björk Magnúsdóttir deildarforseti sálfræðideildar við HR, Elínar H…
Á myndinni eru frá vinstri Brynja Björk Magnúsdóttir deildarforseti sálfræðideildar við HR, Elínar Hirst verkefnastjóri velsældarhagkerfis hjá Embætti landlæknis, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra sem veitti styrkinn, Stefán Hrafn Jónsson forseti Fræðasviðs við HÍ og Sigurður Kristinsson deildarforseti Félagsvísinda við HA

Nýtt meistaranám í Velsældarfræðum, Wellbeing Science, var eitt 19 verkefna sem hlaut styk úr Samstarfssjóði háskóla í morgun, eða 61 milljón króna. Um er að ræða samstarfsverkefni HR, HÍ, HA, Embætti landlæknis og Surrey háskóla á Englandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla- og nýsköpunarráðherra kynnti úthlutunina.

Velsældarhagkerfi er notað til að lýsa sýn sem er frábrugðin hinni hefðbundu nálgun á hagkerfið út frá eingöngu efnahagslegum mælingum. Þess í stað eru velsæld og lífsgæði metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum þáttum jafnt sem efnahagslegum.

,,Nýja meistarnámið í Velsældarfræðum er frábært tækifæri til að þjálfa næstu kynslóð leiðtoga í opinbera-, einka- og þriðja geiranum. Við þurfum nýtt hagkerfi og nýja sérfræðiþekkingu þar sem áhersla er lögð á velsæld fólks og umhverfis á sjálfbæran hátt. Með áherslum sínum á velsældarhagkerfið er Ísland því leiðandi í þeirri umbreytingu sem nú er að eiga sér stað," segir Lorenzo Fioramonti prófessor við háskólann í Surrey á Englandi og fyrrverandi menntamálaráðherra Ítalíu, en Surrey háskóli er einn þeirra háskóla sem standa að nýja meistarnáminu. 

 

 

Nýjast