Norðanátt hlýtur styrk úr Lóunni
Á heimasíðu Eims kemur fram að það séu sannarlega spennandi tímar fram undan í frumkvöðlaumhverfi Norðurlands. Í vikunni tilkynnti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið úthlutanir úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.
Norðanátt hlaut styrk úr sjóðnum uppá 3,9 milljónir króna fyrir verkefnið Norðanátt í Víking til Noregs en samtals var tæpum 100 m.kr. úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur um veitingu Lóu nýsköpunarstyrkja taldi skara fram úr.
Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.
Verkefnið, sem er samstarfsverkefni Norðanáttar og Innovasjon Norge, er tvíþætt. Í fyrsta lagi er frumkvöðlum af landsbyggðinni veitt tækifæri til að vinna í norsku frumkvöðlaumhverfi og tengslanet þannig eflt til muna. Í öðru lagi mun Norðanátt samhliða þessu eflast með auknum tengslum við norska nýsköpunargeirann með uppbyggingu grænnar atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum að markmiði.
Alls bárust 100 umsóknir um styrki í ár og samtals var tæpum 100 m.kr. úthlutað til þeirra verkefna sem matshópur um veitingu Lóu nýsköpunarstyrkja taldi skara fram úr. Hlutverk Lóu er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæða á landsbyggðinni. Styrkirnir veita aukinn slagkraft inn í nýsköpunarverkefni og stuðla að auknu samstarfi um land allt.
„Með nýsköpunarstyrk Lóu stuðlum við að frjórri jarðvegi fyrir nýjar hugmyndir og nýsköpun á landsbyggðinni. Verkefnin sem fá nú styrk koma af öllu landinu og eru virkilega fjölbreytt. Lóa eflir atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti á forsendum landssvæðanna sjálfra. Slíkt mun leggja grunn að bjartari von og fjölbreyttari störfum fyrir þau sem vilja hafa aukið val um búsetu,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra nýsköpunar.
Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina fyrir árið 2022 voru auglýstir í vor og var umsóknarfrestur til 11. maí sl. Matshópur fór yfir allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um veitingu styrkja.
Hér getur þú lesið um þau 21 verkefni sem hlutu styrk í ár.