20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
NiceAir hefur sig ekki á loft í sumar
NiceAir mun ekki fljúga frá Akureyri í sumar og hefur öllu starfsfólki verið sagt upp, alls 16 manns. Mbl.is greindi fyrst frá þessu.
Þar er haft eftir Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni framkvæmdastjóra félagsins að verið sé að skoða hvort félagið muni hefja flug á ný. „Hvort að við gerum það á óbreyttum forsendum eða breyttum forsendum eða einhverjir aðrir komi inn, þá er stóra málið það að við erum búin að sýna fram á að þetta er vit,“ segir Þorvaldur við mbl.is og leggur áherslu á að góð nýting hafi verið á flugi til Kaupmannahafnar.
Ítarlegri umfjöllun um málið er að finna á mbl.is.