Nettó í nýja verslunar- og þjónustumiðstöð á Húsavík

Tölvuteiknuð mynd
Tölvuteiknuð mynd

Samkaup hefur gert samning við KSK eignir ehf. um leigu á Vallholtsveg 8 á Húsavík. Gert er ráð fyrir afendingu rýmisins á 􀆡tímabilinu 2028 – 2030. Alls er um að ræða tæplega 1.400 fermetra rými miðsvæðis í bænum með ásættanlegt magn bílastæða og góðu aðgengi.

Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa:

„Við höfum um langt skeið leitað lausna á verslunarmálum á Húsavík. Núverandi húsnæði Nettó verslunar er of lítið og þröngt og því er þessi lausn afar ánægjuleg. Nú tekur við frekari hönnun og skipulag og innan fárra ára mun Nttó opna glæsilega verslun að Vallholtsvegi 8.“

Brynjar Steinarsson, framkvæmdarstjóri KSK eigna:


„Við erum mjög ánægð með hafa tryggt okkur þessa frábæra staðsetningu í miðbæ Húsavíkur fyrir nýja verslunar- og þjónustumiðstöð. Nttó verður við Vallholtsveg 8 en Vallholtsvegur 10 mun einnig fá góða andlitslyftingu þannig að báðar fasteignirnar myndi eina heild.
Framundan eru því spennandi 􀆡tímar í hönnun svæðisins sem og að taka samtal við heimamenn og rekstraraðila sem kunna að hafa áhuga á að koma að verkefninu. Samhliða hafa áform um byggingu nýs verslunarhúss í jaðri bæjarins verið lögð til hliðar.“ 

Þetta segir í til kynningu frá hlutaðeigandi rétt í þessu

 

Nýjast